Jól
Náttúrulega góð hátíð með íslensku lambakjöti
Íslenska lambakjötið er ómissandi þáttur í íslensku jólahaldi og matarhefðum Íslendinga. Um aldir hefur læri og hryggur með kjarngóðri sósu og hangikjötið sívinsæla glatt okkur um hátíðarnar – en möguleikarnir til að galdra fram hátíðarmat úr íslensku lambakjöti eru í raun óendanlegir.
Allt hefur þetta fært okkur gleðilega hátíð kynslóð fram af kynslóð – og kemur okkur í jólaskapið, njótum íslensks lambakjöts um hátíðarnar – náttúrulega.
Íslenskt lambakjöt er fyrsta og eina íslenska matvaran sem hefur fengið PDO-merkingu, Protected Designation of Origin, sem er hæsta stig verndaðra upprunaheita í Evrópu, staðfesting á sérstöðu og ríkri hefð.