Ofnbakað lambalæri
- 70 mín.
- 6-8

Hráefni
Leiðbeiningar
Hitið ofninn í 200°C. Makið olíu á lærið og stráið oregano og tímíani ofan á og kryddið með salti og pipar. Setjið lærið ofnskúffu ásamt vorlaukunum og eldið í 40-50 mín., eftir því hversu stórt lærið er og hversu vel þið viljið hafa það steikt. Látið hvíla í a.m.k 15 mín áður en borið fram.
Bræðið smjörið á meðalhita, látið kólna ögn, æskilegur hiti um 70°C
Setjið vatn í pott og hitið að suðu, lækkið hitann. Setjið eggjarauður, bernaise essence og vatn í skál sem passar á pottinn. Þeytið viðstöðulaust yfir heitu vatnsbaðinu þar til rauðurnar þykkna, hér er auðvelt að fara framúr sér og elda rauðurnar of hratt! Takið skálina frekar af nokkrum sinnum og hægið á ferlinu sem má taka nokkrar mínútur.
Takið því næst af hitanum og þeytið smjörinu í smáum skömmtum saman við eggjarauðurnar.
Bætið estragon við og smakkið til með salti, pipar og mögulega ögn af bernaise essence.