Steikt lambahjörtu í paprikusósu
Á haustin er um að gera að nýta innmatinn sem best en úr honum má laga bragðgóða og ódýra hversdagsrétti og við hvetjum ykkur til að prófa nýjar uppskriftir og krydd. Hérna er ein frábær uppskrift úr haust blaði Gestgjafans 2011.
- 4
Hráefni
Leiðbeiningar
Hitið olíu á stórri pönnu og steikið beikon í 2 mín bætið þá lauk og paprikustrimlum á pönnuna og steikið í 2 mín takið grænmetið og beikonið af pönnunni og haldið heitu.
Veltið hjörtum upp úr hveiti, saltið og kryddið með pipar.
Setjið 2 msk af olíu á sömu pönnu og steikið hjörtun í 2 mín.
Kryddið þá hjörtun með paprikudufti og steikið í 30 sek til viðbótar.
Bætið tómatþykkni, vatni og rjóma á pönnuna og látið sjóða í 2 mín.
Þykkið með sósujafnara og bragðbætið með salti og pipar.
Berið fram með t.d. hrísgrjónum, kartöflumús eða kúskús.