Sinneps og hunangsgljáð lambalæri

með ostakartöflum og sveppasósu
Sinneps og hunangsgljáð lambalæri

Hráefni

 1 stk lambalæri
 600 gr kartöflur
 50 gr smjör
 80 gr rifinn ostur
 4 msk grófkorna sinnep
 2 msk hunang
 Timjan
 1 box sveppir
 1 shallot laukur
 3 dl lambasoð (eða vatn og kjötkraftur)
 2 msk rauðvínsedik
 2 dl rjómi

Leiðbeiningar

1

Hitið ofn á 180°C, setjið lærið í ofnbakka og smyrjið með ögn af olíu og kryddið vel með salti og pipar.

2

Brúnið í í 20 mínútur, blandið sinnepi og hunangi saman ásamt ögn af timjan og smyrjið lærið með.

3

Lækkið hitann í 160 °C og eldið áfram í u.þ.b. klukkustund, Eða þar til kjarnhitastig passar ykkar smekk, sem fyrir læri er oftast á bilinu 58-68 °C.

4

Þvoið og sjóðið kartöflur í 16 mínútur, hellið af þeim vatninu og setjið í ofnbakka, kremjið kartöflurnar svo að þær springi ögn en haldi þó forminu að mestu.

5

Dreifið smjöri yfir kartöflurnar og rifnum osti, bakið við 160 °C í 20 mínútur eða þar til osturinn hefur brúnast.

6

Skerið shalotlauk fínt, sveppi í báta og kraumið í potti við meðalhita með olíu og ögn af smjöri, bætið ediki við og látið það gufa upp við suðuna.

7

Soði er bætt við og því næst rjóma, þykkið ef þarf og smakkið til.

8

Mælum ávallt með notkun á kjarnhitamæli við ofnsteikingu!

Deila uppskrift