Saltkjöt og baunir
- 2 klst
- 6
Hráefni
Leiðbeiningar
Leggið gular baunir í bleyti með nægu vatni og látið standa yfir nótt. Sigtið og skolið síðan áður en baunirnar eru soðnar.
Skolið kjötið og setjið í stóran pott með 3 l af vatni og sjóðið við vægan hita í a.m.k. 70 mínútur. Slökkvið undir og leyfið kjötinu að sitja í vatninu með lokið á.
Hitið olíu í öðrum potti og svitið lauk og beikon á meðalhita í 3 mín. Bætið baunum og 2 l af vatni í og sjóðið á rólegum hita í 30-40 mín. Hrærið í pottinum reglulega. Færið þá 2-3 kjötbita í súpupottinn, og sjóðið í 30 mín í viðbót.
Þegar kjötið er orðið meyrt og baunirnar mjúkar er hún borin fram, sumir vilja mauka hana fínt í matvinnsluvél eða töfrasprota. Smakkið til með pipar.
Berið súpuna fram með kjötinu ásamt soðnum kartöflum, rófum og gulrótum.