Rjómalagaður lambapottréttur á 20 mínútum
Með bökuðum parmesan kartöflum
- 30 mín
- 2
Hráefni
Pottrétturinn
200 gr. lambagúllas eða annað lambakjöt
1/2 laukur
1 lítil gulrót
50 gr. seljurót
2 msk. olía
2 msk. eplaedik
1 timjanstilkur
1 msk. grænn pipar í krukku
100 ml. lamba eða grænmetissoð
100 ml. rjómi
Bakaðar parmesan kartöflur
200 gr. kartöflur
50 ml. ólífu olía
Sjávarsalt
4 msk. rifinn parmesan ostur
Leiðbeiningar
Pottrétturinn
1
Skerið niður grænmetið og steikið í potti í 3 mínútur.
2
Fjarlægið grænmetið úr pottinum og steikið kjötið í 3 mínutur.
3
Bætið við ediki og soði og sjóðið í 5 mínútur.
4
Bætið við grænmetinu og rjóma og sjóðið í 10 mínútur. Bragðbætið með salti og pipar.
Bakaðar parmesan kartöflur
5
Sjóðið kartöflurnar í 20 mínútur, sigtið og þurrkið. Setjið kartöflurnar í eldfast mót og kreistið þær létt til þess að rífa skinnið.
6
Veltið upp úr olíu og salti og bakið í 15 í 180°C heitum ofni, snúð þeim einu sinni eftir rúmlega 7 mínútur.
7
Rífið parmesanost yfir kartöflurnar áður en þær eru bornar fram.