Langsagað lambalæri með jógúrtkryddlegi

Hér er uppskrift af grilluðu langsöguðu lambalæri með jógúrtkryddlegi sem birtist í grillblaði Gestgjafans 2008.  Höfundur er Úlfar Finnbjörnsson.

Pottur og diskur

Hráefni

 1 lambalæri, án lykilbeins og sagað eftir endilöngu
 Jógúrtkryddlögur:
 2 dl jógúrt, hreint
 2 hvítlauksgeirar, pressaðir
 2 msk. engiferrót, smátt söxuð
 3 msk. sítrónusafi
 1 tsk. kummin
 1 tsk. kóríanderfræ, steytt
 ½ tsk. kardimommur, steyttar
 ½ tsk. salt
 3 msk. mynta, smátt söxuð

Leiðbeiningar

1

Setjið allt í skál og blandið vel saman. Veltið lambinu upp úr kryddleginum og geymið í kæli í 2-12 klst.

Strjúkið megnið af kryddleginum af kjötinu og grillið á meðalheitu grilli í 25-30 mín. Snúið kjötinu reglulega. Berið kjötið fram með t.d. grilluðu grænmeti og bökuðum kartöflum.

2
Uppskriftin er úr Gestgjafanum. Umsjón: Úlfar Finnbjörnsson Myndir: Kristinn Magnússon Stílisti: Gerður Harðardóttir

Deila uppskrift