Lamb í smjördeigi

með feta osti
lambaþríhyrningar með feta osti

Hráefni

 1 msk smjör
 1 stk hvítlauksgeiri
 1/2 laukur
 500 gr lambahakk
 1 tsk koriander duft
 1 tsk cumen
 1 msk Salt
 1 tsk túrmerik
 50 gr feta ostur/salat feta
 1 pk smjördeig
 1 eggjarauða

Leiðbeiningar

1

Stillið ofninn á 200°C

2

Bræðið smjörið í potti á miðlungshita.

3

Skerið niður lauk og hvítlauk og svitið á pönnunni.

4

Bætið við lambahakki og kryddinu. Hrærið vel og látið kjötið brúnast vel.

5

Takið pottinn af pönnunni, rífið ostinn yfir og blandið vel.

6

Skerið smjördegið í 6 cm x 6 cm ferhyrninga og setjið setjið kjötblönduna á annan helming ferhyrninga og notið hinn helminginn til þess að loka deginu. Þrýstið samskeytunum saman með gaffal og setjið hornin á bökunarplötu með bökunarpappír.

7

Penslið með eggjarauðu og bakið í 10-15 mínútur eða þar til hornin eru orðin gyllt.

Deila uppskrift