Lambapottur með tómötum og kartöflum

Hér er allt soðið í einum potti - lambakjöt, kartöflur og bragðmikil sósa.

Pottur og diskur

Hráefni

 1.5 kg lambakjöt (gjarna frampartur)
 2 msk ólífuolía
 2 laukar, saxaðir
 2-3 hvítlauksgeirar, saxaðir smátt
 500 g tómatar, vel þroskaðir, saxaðir (eða 2 dósir niðursoðnir tómatar)
 2-3 sellerístönglar, skornir í bita (má sleppa)
 safi úr 1 sítrónu
 2 tsk oregano
 0.5 tsk timjan
 0.5 l soð eða vatn
 nýmalaður pipar
 salt
 1 kg kartöflur, helst fremur litlar

Leiðbeiningar

1

Kjötið e.t.v. fitu- og beinhreinsað og skorið í minni bita. Olían hituð í þykkbotna potti og kjötið brúnað nokkuð vel en síðan tekið upp með gataspaða og sett á disk. Laukurinn og hvítlaukurinn settur í pottinn og látinn krauma við meðalhita í nokkrar mínútur, þar til hann er mjúkur. Þá er kjötið sett aftur í pottinn og síðan tómatar, sellerí, safinn úr sítrónunni, oregano og timjan. Soði eða vatni hellt yfir, hitað að suðu og kryddað með pipar og salti. Látið malla við hægan hita í lokuðum potti í um 45 mínútur en þá eru kartöflurnar afhýddar og þeim bætt í pottinn. Svolitlu vatni bætt út í ef þarf. Látið malla áfram í 20-25 mínútur, eða þar til kartöflurnar eru vel meyrar.

Deila uppskrift