Lambakótilettur í raspi

Kótilettur eins og þær voru hjá mömmu og ömmu á sunnudögum hér áður fyrr - velt upp úr raspi og síðan pönnusteiktar í smjörlíki.

Pottur og diskur

Hráefni

 12 lambakótilettur
 1 egg
 3 msk mjólk
 1 bolli þurr brauðmylsna
 nýmalaður pipar
 salt
 75 g smjör eða smjörlíki

Leiðbeiningar

1

Kótiletturnar þerraðar, hluti af fitunni e.t.v. skorinn burt (einkum af rifinu) og barðar létt með buffhamri. Egg og mjólk léttþeytt saman og brauðmylsnan krydduð með pipar og salti. Smjörið brætt á stórri, þykkbotna pönnu. Kótilettum velt upp úr eggjablöndunni og síðan brauðmylsnunni. Brúnaðar á báðum hliðum við góðan hita en síðan er hitinn lækkaður og kótiletturnar steiktar áfram við hægan hita í 8-10 mínútur. Snúið einu sinni. Þá eru þær teknar af pönnunni og raðað á heitt fat. Meira smjör e.t.v. brætt á pönnunni og borið fram með.

Deila uppskrift