Lambakarrí – með hrísgrjónum og nanbrauði

Nýtum kalda afganga í exótíska rétti og tilraunir með bragð og krydd. hér er brugðið á leik með indverskum hætti.

Pottur og diskur

Hráefni

 2 laukar, 1 gult epli, 2 hvítlauksgeirar, 2 gulrætur
 ½ tsk kanill
 2 tsk karrí
 ½ tsk paprika
 ½ tsk engifer
 250 ml kókosmjólk
 1 kóríander búnt- ferskt
 lambakjöt – t.d. afgangur af fituhreinsuðu súpukjöti,læri eða fille, lund eða annað sem til fellur.

Leiðbeiningar

1

Skerið lauk, hvítlauk og gulrætur niður eftir smekk. Gyllið gulrætur og lauk vandlega á pönnuni með olíu, að því loknu setjið eplin og bætið svo þurrkryddi út í og látið malla í 2-3 min við vægan hita. Bætið þá kjötinu út í og steikið í 1-2 mín. Hellið þá kókosmjólkinni út í og látið malla. Saltið að smekk. Saxið ferskt kóríander og stráið yfir áður en framreitt. Berið fram með hrísgrjónum og nanbrauði.

Deila uppskrift

Þessi vefsíða notar vafrakökur til að bæta upplifun þína. Með því að halda áfram samþykkir þú stefnu okkar um vafrakökur.​