Lambainnralæri með beikoni og kryddjurtum

Ljúffeng uppskrift við öll tækifæri úr jólatölublaði Gestgjafans 2011.

Pottur og diskur

Hráefni

 salt og nýmalaður pipar
 2 lambainnralæri
 4 rósmaríngreinar
 4-6 tímíangreinar
 4 beikonsneiðar
 2 msk. olía
 1 laukur, smátt saxaður
 1 ½ dl hvítvín, mysa eða vatn
 3 dl vatn
 ½ msk. lambakraftursósujafnari
 30 g kalt smjör í teningum

Leiðbeiningar

1

Saltið innralæri og kryddið með pipar.

Leggið helminginn af rósmarín- og tímíangreinum undir kjötið og setjið hinn helminginn ofan á.

Vefjið 2 beikonsneiðum utan um hvort innralæri og festið með tannstöngli.

Hitið olíu á pönnu og steikið kjötið á öllum hliðum þangað til það er orðið fallega brúnað.

Bætið þá lauk og hvítvíni á pönnuna og færið hana inn í 180°C heitan ofn í 4 mínútur.

Takið þá pönnuna úr ofninum og snúið kjötinu við. Geymið pönnuna við stofuhita í 4 mín og setjið hana síðan aftur í ofninn og endurtakið leikinn þar til kjötið hefur verið samtals 16 mínútur í ofninum.

Setjið kjötið á disk og leggið álpappír yfir. Setjið pönnuna á heita hellu og bætið vatni og kjötkrafti saman við laukblönduna.

Passið ykkur á haldinu á pönnunni því það er ótrúlega heitt.

Þykkið sósuna með sósujafnara, takið hana síðan af hellunni og hrærið smjör saman við með písk þar til það er bráðið.

Takið þá tannstönglana úr kjötinu og skerið það í fallegar sneiðar.

Berið fram með sósunni og t.d. steiktum eplum, grænmeti og kartöflum.

2
Uppskriftin er úr Gestgjafanum. Umsjón: Úlfar Finnbjörnsson Myndir: Kristinn Magnússon og Karl Petersson

Deila uppskrift