Lambagúllas

Gömul og góð íslensk gúllasuppskrift, gúllas eins og amma eldaði. Þetta gúllas er mjög gott með kartöflustöppu en það má líka hafa soðnar kartöflur með því.

Pottur og diskur

Hráefni

 1 kg lambasmásteik, framhryggur eða súpukjöt
 2 laukar
 4 gulrætur
 75 g smjörlíki
 4 msk hveiti
 0.75 l kjötsoð eða vatn
 2 lárviðarlauf
 1 tsk paprikuduft
 0.5 tsk nýmalaður pipar
 0.25 tsk allrahanda (má sleppa)
 salt
 sósulitur

Leiðbeiningar

1

Kjötið skorið í hæfilega bita og e.t.v. fituhreinsað eitthvað. Laukarnir skornir í sneiðar og gulræturnar skafnar og skornar í bita. 25 g af smjörlíki brædd á pönnu og laukurinn steiktur þar til hann er farinn að brúnast en þá er honum hellt yfir í þykkbotna pott. Afgangurinn af smjörlíkinu bræddur á pönnunni. Kjötinu velt upp úr hveitinu og það síðan brúnað við góðan hita (afgangurinn af hveitinu geymdur). Sett í pottinn með lauknum. Dálitlu af soðinu eða vatninu hellt á pönnuna, látið sjóða rösklega í 1-2 mínútur og botninn á pönnunni skafinn á meðan með spaða. Hellt yfir kjötið og síðan er afganginum af soðinu bætt í pottinn ásamt gulrótum og kryddi. Hitað að suðu og látið malla við fremur hægan hita undir loki í 45-50 mínútur. Afgangurinn af hveitinu settur í hristiglas ásamt dálitlu köldu vatni, hrist vel saman og síðan hrært saman við soðið til að þykkja. Látið malla í 5-10 mínútur í viðbót. Sósan er svo smökkuð til með pipar og salti og lituð með sósulit. Borið fram t.d. með kartöflustöppu.

Deila uppskrift