Steiktur lamba framhryggur (e. prime)

með kartöflumús og timjan-soðsósu
Lamba prime með seljurótarmús

Hráefni

Kjötið
 250 gr Lamba rib eye
 1 msk olía
 2 msk smjör
 2 hvítlauksgeirar
 Timjan og hvítlauksgeiri
 Salt
 Svartur pipar
Seljurótarmús
 1 msk Smjör
 300 gr seljurót, skorin í bita
 500 ml rjómi
Pikklað grænmeti
 250 ml vatn
 250 ml eplaedik
 250 gr sykur
 4 Timjanstiklar
 1 msk heil piparkorn
 2 hvítlauksgeirar
 1 haus fennel, skorið
 1 stjörnuanís
 8 rófubitar
 5 skarlottulaukar
 2 msk pikklunarvökvi
 2 msk olía
 Salt
Timjan soðsósa
 1 lítri lambasoð
 2 hvítlauksgeirar
 1 msk smjör
 Salt
 5 Timjanstilkar
Kartöflumús
 200 gr kartöflur
 200 gr rjómi
 1 msk smjör
 2 timjanstilkar

Leiðbeiningar

Kjötið
1

Veltið kjötinu vel upp úr salti og pipar.

2

Hitið smjör og olíu á pönnu. Setjið kjötið á pönnuna þegar smjörið er byrjað að brúnast.

3

Bætið við hvítlauk og timjan og brúnið kjötið vel.

4

Setjið hvítlaukinn og timjan ofan á kjötið. Setjið kjötið í eldfast mót og eldið í ofni í rúmlega 10 mínútur í 170°C heitum ofni eða þar til kjarnhiti er 58°C.

5

Takið kjötið úr ofni og látið það jafna sig í 10 mínútur áður en það er skorið.

Seljurótarmús
6

Steikið seljurótina í potti upp úr smjörinu þar til bitarnir hafa brúnast.

7

Bætið við rjóma og sjóðið þar til bitarnir eru eldaðir í gegn.

8

Setjið í matvinnsluvel, blandið vel og kryddið til með salti.

Pikklað grænmeti
9

Sjóðið saman vatn, eplaedik, sykur, timijan, piparkorn, hvítlauksgeira, fennel og stjörnuanís. Látið standa í klukkutíma áður en pikklunarvökvin er notaður.

10

Steikið rófubita og skallottulauk

11

Veltið rófubitum og laukn upp úr pikklunarvökvanum, olíu og salti.

12

Setjið í eldfast mót og eldið í 30 mínútur í 180°C heitum ofni, hrærið í mótinu á 10 mínútna fresti.

Timjan soðsósa
13

Bræðið smjör í potti og bætið við timjan og hvítlauk. Svitið á meðalhita í 2-3 mínútur og bætið við soði og salti.

14

Sjóðið í 30 mínútur, sigtið og sjóðið niður um helming.

Kartöflumús
15

Sjóðið kartöflurnar uppúr vatni með timjan þar til þær mjúkar.

16

Setjið í matvinnsluvél með rjóma og smjöri og blandið vel saman. Passið að hræra ekki lengi!

Deila uppskrift

Þessi vefsíða notar vafrakökur til að bæta upplifun þína. Með því að halda áfram samþykkir þú stefnu okkar um vafrakökur.​