Lamb á 10 mínútum
með spínati, kirsuberjatómötum og mango chutney
- 10 mín
- 2
Hráefni
400 gr lambagúllas eða mínútusteik
2 rauðlaukur,sneiddur
60 gr spínat
10 kirsuberjatómatar, skornir í tvennt
2 msk ólífu olía
1 Msk mango chutney
Leiðbeiningar
1
Þunnir lambabitar þurfa bara örfáar mínútur í steikingu, undirbúa og elda þennan rétt á innan við 10 mínútum.
Hafið allt hráefnið tilbúið og hitið pönnu.
2
Steikið kjötið á háum hita í 2 mín. Bætið mango chutney í pönnuna og hrærið saman.
3
Bætið rauðlauk, spínati og tómötum í og eldið í 1 mín til viðbótar.
4
Kryddið með salti og pipar og berið fram með góðu salati.