Kúskússalat með lambafillet og harissa-sósu

Norður-Afríkubúar eru hrifnir af lambakjöti eins og við Íslendingar. Þeir eru líka sólgnir í svið eins og við hér heima. Kanill, chilimauk og kummin eru krydd sem þeir nota mikið og hér eru nokkrar uppskriftir sem laða fram góða bragðið af okkar frábæra lambakjöti. Hér er ein frábær úr júní tölublaði Gestgjafans 2011.

Pottur og diskur

Hráefni

 2 msk. olía
 1 tsk. paprikukrydd
 2 lambafillet
 salt og pipar
 1 dl sjóðandi vatn
 2 tsk. harissa-kryddmauk
 1 msk. olía
 250 g kúskús
 40 g blandað salat

Leiðbeiningar

1

Blandið saman olíu og paprikukryddi og penslið lambafillet með blöndunni.

Grillið á kjötið á öllum hliðum og setjið á bakka.

Grillið við óbeinan hita í 5 mín. sjóðið kúskús samkvæmt leiðbeiningum á pakka.

Sjóðið vatn og harissa-kryddmauk saman og bætið olíu út í.

Setjið kúskús á fat og stráið salati yfir.

Skerið lambafillet í sneiðar og raðið ofan á salatið.

Hellið harrisa-sósunni yfir allt saman.

2
Uppskriftin er úr Gestgjafanum. Umsjón: Sigríður Björk Bragadóttir Myndir: Bragi Jósepsson Stílisti: Guðrún Hrund Sigurðardóttir

Deila uppskrift