Kótelettur með hvítlauksraspi
- 40 mín
- 2
Hráefni
Leiðbeiningar
Bakið nípuna heila á 160°c í 40 mín. Skerið í tvennt eftir endilöngu og kryddið með salti og ediki.
Laukur, hvítlaukur er saxað smátt og sett í skál með smjörinu. Sítrónubörkur er rifinn með rifjárni og bætt í með sinnepi og worshchestershire sósunni. Blandið vel saman.
Rífið hvítlaukinn í raspinn og steikið á pönnu upp úr smjöri þar til hann verður gylltur og fallegur. Smakkið til með salti.
Skrælið og skerið perlulauk í tvennt.
Setjið vatn, salt, edik og sykur í pott og hitið að suðu. Sjóðið laukinn í ediks leginum í 2-3 mín. og kælið í vökvanum. Geymist vel í kæli.
Hitið pönnuna vel. Setjið olíuna á pönnuna ásamt sveppunum og steikið. Þegar þeir eru farnir að vera taka lit, bætið bæta smjörinu við og saltið.
Hitið pönnu vel og setjið olíu á hana, brúnið kótelettur u.þ.b.1 mínutu á hvorri hlið.
Bætið smjöri á pönnuna og leyfið kótelettunum að brúnast vel.
Bætið soya sósuna á pönnuna og snúið kótelettunum við. Saltið og piprið. Geymið smjörið af pönnuni og notið sem sósu.
Berið kóteletturnar fram með góðri klípu af kryddsmjöri ofan á og bætið góðri matskeið af raspi við í lokin.