Kóríanderkryddaðar lambagrillsteikur

Sérlega meyrt og gott lambakjöt sem er látið liggja í kryddlegi úr kóríanderlaufi, hunangi, Grand Marnier og fleiru og síðan grillað við góðan hita.

Pottur og diskur

Hráefni

 800 g framhryggjarfillet
 0.5-1 knippi kóríanderlauf, söxuð
 0.5 dl þunnt hunang
 2 msk. sojasósa
 2 msk. Grand Marnier eða brandí
 2-3 hvítlauksgeirar, saxaðir
 nýmalaður pipar
 salt
 2 dl þurrt hvítvín

Leiðbeiningar

1

Skerið kjötið í 8-10 bita. Setjið kóríanderlauf, hunang, sojasósu, Grand Marnier, hvítlauk og pipar í skál og hrærið vel saman. Setjið kjötið út í og veltið því upp úr leginum. Látið standa í kæli í nokkrar klukkustundir og hrærið í öðru hverju. Takið það svo úr leginum, saltið það og látið standa við stofuhita á meðan grillið er hitað. Grillið kjötið við nokkuð góðan hita í 5-8 mínútur á hvorri hlið, eða eftir smekk. Setjið afganginn af leginum í pott ásamt víninu, hitið að suðu og látið sjóða í nokkrar mínútur. Smakkið, bragðbætið með pipar og salti eftir þörfum og berið fram með kjötinu. Berið t.d. fram með soðnum hrísgrjónum, blönduðum söxuðu mangóaldini, kasjúhnetum og söxuðum kryddjurtum eftir smekk.

2

fillet filet fille file

Deila uppskrift