Konudagskonfekt

Með ristuðu kartöflusalati
konudagskonfekt með ristuðu kartöflusalati

Hráefni

Kjötið
 850 g lambakonfekt
 80 ml kókósmjólk
 60 g rautt karrímauk
 1 msk. límónusafi
 1 tsk. sjávarsalt
 ½ tsk. nýmalaður svartur pipar
 límónusneiðar,til að bera fram með
Ristað kartöflusalat
 1,5 kg kartöflur, gott er að nota möndlukartöflur
 2 msk. ólífuolía
 1-2 tsk. sjávarsalt
 ½ -1 tsk. nýmalaður svartur pipar
 200 g 36% sýrður rjómi
 2 msk. gróft sinnep
 60 ml vatn
 hnefafylli dill,skorið gróflega
Rauðlaukur með fetaosti
 2 rauðlaukar, afhýddir og skornir í þykkar sneiðar
 1 msk. ólífuolía
 1-2 tsk. sjávarsalt
 ½ -1 tsk. nýmalaður svartur pipar
 60 ml hunang
 ¼ tsk. cayenne-pipar
 u.þ.b. 120 g fetaostur, hreinn
 3-4 msk. pekanhnetur, ristaðar
 2 msk. graslaukur, gróft skorinn

Leiðbeiningar

Kjötið
1

Setjið kókosmjólk, karrímauk, límónusafa, salt og pipar í skál og blandið saman.

2

Bætið kjötinu út í blönduna og nuddið saman við. Setjið til hliðar í 15 mín.

3

Hitið grillpönnu eða aðra pönnu og hafið á miðlungsháum hita. Steikið lambið í 4-5 mín. á hvorri hlið

4

Berið fram með límónusneiðum til að kreista örlítið yfir kjötið, ásamt kartöflusalati og grilluðum rauðlauk.

Ristað kartöflusalat
5

Sjóðið kartöflurnar í 8-10 mín. Hellið frá vatninu og skerið í tvennt.

6

Setjið á bakka, penslið með olíu og saltið og piprið, í 180°C heitan ofn í 10 mín.

7

Setjið sýrðan rjóma, sinnep, vatn, ½ tsk. salt og ¼ tsk. pipar í skál og blandið saman.

8

Setjið kartöflurnar á fat og hellið sósunni yfir. Sáldrið yfir örlitlu salti og pipar ásamt dilli.

Rauðlaukur með fetaosti
9

Setjið laukinn í skál með köldu vatni og látið standa í 10-15 mín.

10

Hitið grill eða grillpönnu og hafið á háum hita. Sigtið vatnið frá og þerrið laukinn. Dreypið ólífuolíu yfir laukinn og sáldrið yfir salti og pipar. Grillið laukinn í 15-20 mín. eða þar til hann er hefur náð góðum lit að utan og er mjúkur að innan.

11

Á meðan laukurinn er að eldast setjið hunang, cayenne-pipar og ¼ tsk. salt í litla skál og blandið saman.

12

Setjið laukinn á fat og sáldrið yfir fetaosti, pekanhnetum og graslauk. Dreypið því næst sósunni yfir og berið fram.

Deila uppskrift

Þessi vefsíða notar vafrakökur til að bæta upplifun þína. Með því að halda áfram samþykkir þú stefnu okkar um vafrakökur.​