Kindakæfa

Kindakæfa
Pottur og diskur

Hráefni

 2 kg súpukjöt, gjarna feitt
 2 lárviðarlauf
 2-3 msk salt
 sjóðheitt vatn
 2-3 laukar, saxaðir smátt
 1-2 tsk pipar
 1 tsk allrahanda, steytt

Leiðbeiningar

1

Kjötið sett í pott ásamt lárviðarlaufi og hluta af saltinu og sjóðheitu vatni hellt yfir; það á rétt að fljóta yfir kjötið. Soðið við fremur hægan hita þar til kjötið er svo meyrt að unnt er að tína beinin úr því með höndunum.

2

Þá er kjötið tekið upp úr, beinhreinsað og hakkað ásamt mörnum.

3

Laukurinn settur í soðið (svolitlu vatni eða kjötsoði bætt við ef þarf) og látinn malla nokkra stund.

4

Soðið síað og látið sjóða niður þar til aðeins um ½ bolli er eftir. Þá er hakkið sett út í og hrært vel, kryddað með allrahanda og salti og pipar eftir smekk. Tekið af hitanum og hrært mjög vel, sett í mót og kælt.

Deila uppskrift