Hægeldaður og rifinn lambabógur
með BBQ sósu
- 5 klst
- 6

Hráefni
2.5 kg lambabógur
3 laukar, skornir í þykkar sneiðar
1 hvítlauksgeirar, afhýddir
1 msk. kummin
1-2 tsk. sjávarsalt
600-700 ml BBQ sósa
Leiðbeiningar
1
Hitið ofn í 160°C.
2
Setjið lauk og hvítlauk í stórt og djúpt eldfast mót.
3
Sáldrið kummin og salt yfir kjötið og leggið ofan á laukinn mótinu.
4
Hellið vatni í mótið þannig að það nái upp 4 cm meðfram hliðunum.
5
Leggið álpappír yfir mótið og lokið honum vel meðfram öllum hliðum.
6
Eldið í 4-5 klst. eða þar til kjötið er mjúkt og rennur auðveldlega af beininu. Fjarlægið álpappírinn þegar u.þ.b. 1 klst. er eftir af eldunartímanum þannig að kjötið nái að fá stökka skorpu.
7
Takið úr ofninum og látið standa í a.m.k. 20 mín. áður er kjötið er rifið niður. Rífið kjötið frá beininu með gaffli eða höndunum og setjið í stóra skál.
8
Blandið BBQ sósu vel saman við þannig að það þeki allt kjötið.
Deila uppskrift
Share on facebook
Share on twitter
Share on pinterest