Hægeldaður og rifinn lambabógur
- 5 klst
- 6
Hráefni
Leiðbeiningar
Hitið ofninn í 160°C.
Setjið lauk og hvítlauk í stórt og djúpt eldfast mót.
Sáldrið broddkúmen og salti yfir kjötið og leggið ofan á laukinn í mótinu.
Hellið vatni í mótið þannig að það nái upp 4 cm meðfram hliðunum.
Leggið álpappír yfir mótið og lokið honum vel meðfram öllum hliðum.
Eldið í 4-5 klst. eða þar til kjötið er mjúkt og rennur auðveldlega af beininu. Fjarlægið álpappírinn þegar u.þ.b. 1 klst. er eftir af eldunartímanum þannig að kjötið nái að fá stökka skorpu.
Takið úr ofninum og látið standa í a.m.k. 20 mín. áður er kjötið er rifið niður. Rífið kjötið frá beininu með gaffli eða höndunum og setjið í stóra skál.
Blandið BBQ sósu vel saman við þannig að það þeki allt kjötið. Notið með meðlæti að eigin vali, eða t.d. í samlokur, tacos, á pizzur o.fl.