Hægeldaður lambahryggur

með rauðvínssósu og hunangsgljáðu grænmeti
Pottur og diskur

Hráefni

Lambahryggur
 1 lambahryggur (2 kíló)
 2 dl rauðvín
 1 laukur, afhýddur og skorinn í stóra bita
 1 hvítlaukur, afhýddur og skorinn í báta
 4 tómatar, skornir í tvennt
 5 lárviðarlauf
 Ólífuolía
 Salt og pipar
 Gott krydd, t.d. rósmarín
Rauðvínssósa
 Vökvinn úr ofnpottinum
 1 tsk nautakraftur
 1 tsk sojasósa
 2-3 dl rjómi
 1 tsk hunang
 Salt og pipar
 Sósujafnari
Hunangsgljáð grænmeti
 6-8 gulrætur, flysjaðar og skornar í bita
 1/2 ferskur brokkolí-haus, skorin í bita
 150 gr sveppir, skornir í bita
 1 paprika, skorin í bita
 Smjör eða olía til steikingar
 Grænmeti frá steikarpottinum
 1 msk hunang
 1/2 tsk nautakraftur
 Salt og pipar
 Sesamfræ

Leiðbeiningar

Lambahryggur
1

Ofninn er hitaður í 100 gráður.

2

Hryggurinn er snyrtur ef þarf, skolaður og þerraður. Því næst er hann, nuddaður með ólífuolíu og kryddaður með salti og pipar.

3

Rauðvíni er hellt í ofnpottinn og hryggurinn settur ofan í ásamt, lauk, hvítlauk, tómötum og lárviðarlaufum.

4

Því næst er kryddað yfir allt með rósmarín eða Best á allt. Lokið er sett á ofnpottinn og hryggurinn eldaður við 100 gráður í ca 5 tíma fyrir 2 kílóa hrygg. Best er að nota kjöthitamæli og stinga honum þar sem vöðvinn er þykkastur. Hryggurinn er tilbúinn þegar hitinn er komin í ca. 62-65 gráður.

5

Þegar ca. 10 mínútur eru eftir af tímanum er ofnpotturinn tekinn út úr ofninum, vökvanum hellt af í skál. Ofninn er hitaður í 220 gráður á grillstillingu. Hryggurinn er settur aftur ofan í ofnpottinn án loks og hann hitaður í ofninum í ca. 6-8 mínútur (áfram á grillstillingu og sama hita) eða þar til puran verður dökkbrún – fylgist vel með hryggnum.

6

Þá er hryggurinn tekinn út og leyft að jafna sig áður en hann er skorinn niður. Á meðan þessu stendur er sósan útbúin.

Rauðvínssósa
7

Vökvinn úr ofnpottinum er sigtaður og tær vökvinn settur í pott. Mesta fitan er veidd ofan af vökvanum.

8

Suðan látin koma upp og vökvinn látinn malla kröfuglega í ca. 10-15 mínútur eða þar til hann hefur soðið niður um allavega 1/3.

9

Þá er restinni af hráefnunum bætt út og suðan látin koma aftur upp, sósan látin malla þar til hún er hæfilega þykk. Þá er sósan smökkuð til með kryddum.

Hunangsgljáð grænmeti
10

Vatn sett í pott og suðan látin koma upp.

11

Gulrætur og brokkolí sett út í vatnið og látið sjóða í örfáar mínútur þar til það er hálfsoðið.

12

Sveppir steikir á pönnu upp úr smjöri/olíu og nautakrafti, ásamt papriku.

13

Þá er hálfsoðna brokkolíinu og gulrótunum bætt út á pönnuna ásamt lauknum og tómötunum úr steikarpottinum.

14

Hunangi bætt út í og kryddað örlítið með salti og pipar auk þess sem sesamfræum er stráð yfir. Grænmetinu leyft að malla í nokkrar mínútur við meðalhita.

Deila uppskrift