Grillaður lambahryggur

Eitt vinsælasta hráefnið á grillið er án efa íslenska lambakjötið. Það er bragðgott, mátulega feitt og svo er líka auðvelt að grilla það. Það er alltaf hægt að slá í gegn með lambakjöti sama hvert tilefnið er, það á allt-af við og verður alltaf hinn klassíski, íslenski grillmatur. Hér koma nokkrar gómsætar uppskriftir úr þessu frábæra hráefni úr maí tölublaði Gestsgjafans 2011.

Pottur og diskur

Hráefni

 1 lambahryggur
 ½ dl olía
 2 hvítlauksgeirar, pressaðir
 1 tsk. chili-flögur
 1 tsk. kummin
 1 msk. óreganó
 1 tsk. nýmalaður pipar1½ tsk. salt

Leiðbeiningar

1

Skerið síðufitu af lambahrygg, penslið hann með olíu og kryddið með öllu nema salti. Látið standa við stofuhita í 2 klst. grillið á álbakka á meðalheitu, lokuðu grilli í 25-30 mín. Saltið þá hrygginn og látið standa í 5-10 mín. áður en hann er borinn fram.

2

Kummin- og óreganósósa:

3

1½ dl majónes
1½ dl sýrður rjómi
¾ dl ab-mjólk
1 msk. kumminfræ, steytt
2 msk. óreganó, smátt saxað
1 msk. sítrónusafi
1 msk. hlynsíróp
salt og nýmalaður pipar

Setjið allt í skál og blandið vel saman.

4
Uppskriftin er úr Gestgjafanum. Umsjón: Úlfar Finnbjörnsson Myndir: Kristinn Magnússon Stílisti: Guðrún Vaka Helgadóttir

Deila uppskrift