Grillaðar lambakótelettur með basilíkupestó

Norður-Afríkubúar eru hrifnir af lambakjöti eins og við Íslendingar. Þeir eru líka sólgnir í svið eins og við hér heima. Kanill, chilimauk og kummin eru krydd sem þeir nota mikið og hér eru nokkrar uppskriftir sem laða fram góða bragðið af okkar frábæra lambakjöti. Hér er ein frábær úr júní tölublaði Gestgjafans 2011.

Pottur og diskur

Hráefni

 12 lambakótelettur
 2 msk. olía
 2 msk. sítrónusafi
 1 tsk. paprika
 1 msk. ferskt tímían eða óreganó eða 1 tsk. þurrkað
 

Meðlæti:

 1 kúrbítur, skorinn í sneiðar
 250-350 g konfekt tómatar
 olía
 salt og pipar
 1-2 dl basilíkupestó

Leiðbeiningar

1

Raðið lambakótelettum á bakka.

Blandið saman olíu, sítrónusafa, papriku og kryddi og penslið kóteletturnar báðum megin, látið þær bíða í 30 mín.

Hitið ofninn í 200°C. skerið tómata í tvennt og setjið þá í bakka, penslið þá með olíu og kryddið yfir með salti og pipar.

Bakið tómatana í 20-30 mín. eða þar til þeir eru farnir að taka lit.

Penslið kúrbítinn og grillið á báðum hliðum.

Grillið kóteletturnar á báðum hliðum.

Berið þær fram með kúrbítnum, bökuðum tómötum og basilíkupestó.

2

Basilíkupestó:

3

2 hvítlauksgeirar
40-50 g basilíkulauf
2 tsk. sjávarsalt
50 g furuhnetur
50 g parmesanostur í bitum
6 msk. ólífuolía
salt og pipar eftir smekk

Setjið hvítlauksgeira, basilíkulauf, salt, furuhnetur og parmesanost í matvinnsluvél og maukið vel.

Bætið olíu út í og blandið vel saman. smakkið til með salti og pipar.

Geymist 5-7 daga í kæliskáp.

4
Uppskriftin er úr Gestgjafanum. Umsjón: Sigríður Björk Bragadóttir Myndir: Bragi Jósepsson Stílisti: Guðrún Hrund Sigurðardóttir

Deila uppskrift