Grillaðar karríkryddaðar kótilettur

Það er dálítið indverskur keimur af þessum kótilettum, þar sem þær eru marineraðar í karríkryddaðri jógúrt áður en þær eru grillaðar. Svo má líka nota meira karrí í kryddlöginn ef þess er óskað.

Pottur og diskur

Hráefni

 12-16 lambakótilettur, gjarna fitusnyrtar
 0.5 dós hrein jógúrt
 0.25 laukur
 2 hvítlauksgeirar
 2 tsk karríduft
 cayennepipar á hnífsoddi
 salt

Leiðbeiningar

1

Kótiletturnar settar í eldfast fat. Allt hitt nema saltið þeytt saman í matvinnsluvél eða blandara (einnig má saxa laukinn og hvítlaukinn smátt og hræra saman við jógúrtina og kryddið) og hellt yfir. Plast breitt yfir og látið standa í kæli í a.m.k. 6 klst, eða í allt að tvo sólarhringa; snúið öðru hverju. Síðan er grillið hitað. Kótiletturnar teknar úr leginum og hann skafinn vel af þeim. Saltaðar og síðan grillaðar við góðan hita í 3-5 mínútur á hvorri hlið, eða eftir smekk. Bornar fram t.d. með soðnum hrísgrjónum og tómatsalati, og e.t.v. sítrónu-jógúrtsósu.

Deila uppskrift