Grillað lambalæri

Grillþátturinn sem sýndur var í ríkissjónvarpinu í júní 2004 vakti mikla athygli. Gestgjafi var Nanna Rögnvaldardóttir og er þessi uppskrift úr þættinum.

Pottur og diskur

Hráefni

 1 lambalæri, um 2,2 kg, helst nokkuð vel hangið
 6-8 hvítlauksgeirar
 2 tsk. þurrkað timjan
 1 tsk. þurrkað oregano
 2 tsk. paprikuduft
 rifinn börkur af einni sítrónu
 nýmalaður pipar og salt

Leiðbeiningar

1

Kveikið á grillinu og hitið það vel. Fitusnyrtið lærið e.t.v. dálítið, gerið djúpar raufar í það á nokkrum stöðum með hnífsoddi og stingið hvítlauksgeirum inn í það. Blandið saman timjani, oregano, paprikudufti, sítrónuberki, pipar og salti og núið vel á allt lærið.

Slökkvið á öðrum brennaranum á gasgrilli (ef notað er kolagrill eru kolin færð út til hliðanna og álbakki hafður í miðjunni). Setjið lærið á grillið þar sem ekki er eldur undir og lokið síðan. Grillið lærið í 1 klst og 10 til 30 mínútur eftir stærð og eftir því hve mikið það á að vera grillað (notið kjöthitamæli ef þið eruð ekki viss).
Snúið lærinu tvisvar eða þrisvar en opnið grillið annars sem allra minnst. Ef óskað er eftir dekkri skorpu má færa það yfir eldinn seinustu mínúturnar og fylgjast þá vel með því. Best er að það fái að standa í 25-30 mínútur eftir að það er tekið af grillinu og á meðan má baka brauðið og grilla grænmetið.

Deila uppskrift