Grillað lambalæri frá Miðjarðarhafinu

með myntupestó
Grillað lambalæri með myntupestó

Hráefni

Myntupestó
 3 msk. furuhnetur, ristaðar
  1 hnefafylli myntulauf
  ½ hnefafylli steinselja
 60-80 ml ólífuolía
 ½ sítróna, safi nýkreistur
  ½ – 1 tsk. sítrónubörkur, rifinn fínt
  1 hvítlauksgeiri, saxaður smátt
 1 skalotlaukur, saxaður
  ½ tsk. hunang
  u.þ.b. ½ tsk. sjávarsalt
Grillað lambalæri
 2 kg lambalæri, úrbeinað
  hnefafylli steinselja
  ½ hnefafylli myntulauf
 1 rauðlaukur, skorinn smátt
  3 hvítlauksgeirar, saxaðir smátt
 1 ½ tsk. allrahanda krydd
 1 tsk. Kóríander fræ, malaður
  1 tsk. sumac krydd
  ½ tsk. kanill
 1 sítróna, safi nýkreistur
 60 ml ólífuolía
  u.þ.b. 2 tsk. sjávarsalt

Leiðbeiningar

Myntupestó
1

Setjið allt hráefni í matvinnsluvél og maukið þar til allt hefur samlagast vel. Setjið yfir í skál og bragðbætið með salti, kælið þar til fyrir notkun.

Grillað lambalæri
2

Setjið steinselju, myntu, lauk, hvítlauk, þurrkrydd, sítrónusafa og ólífuolíu í matvinnsluvél og maukið þar til myndast hefur slétt mauk.

3

Setjið lambalærið á bretti, leggið plastfilmu yfir kjötið og notið sléttu hliðina á kjöthamar til að slá á kjötið þar til það þykkasti hlutinn hefur þynnst örlítið, þannig að það eldist jafnt.

4

Þerrið kjötið og sáldrið salti yfir báðar hliðar. Setjið lambalærið í stóran rennilásapoka og hellið kryddleginum yfir, lokið pokanum og leggið í fat. Kælið í 2 klst. eða allt upp í 1 sólahring. Takið kjötið úr kælið og látið standa við stofuhita í a.m.k. 30 mín. fyrir eldun.

5

Hitið grill og hafið á háum hita. Grillið í 2-3 mín. á hvorri hlið eða þar til kjötið hefur fengið á sig góðan lit. Lækkið undir grillinu og eldið kjötið í 15-20 mín. Eða þar til kjarnhiti kjötsins er í kringum 51°C – 54°C.

6

Takið af hitanum, leggið kjötið á bretti og látið álpappír yfir. Látið hvíla í a.m.k. 10 mín. áður en það er skorið. Skerið kjötið í sneiðar og berið fram með myntupestói ásamt auka meðlæti að eigin vali.

Deila uppskrift

Þessi vefsíða notar vafrakökur til að bæta upplifun þína. Með því að halda áfram samþykkir þú stefnu okkar um vafrakökur.​