Grillað lambalæri

Grillað lambalæri
Pottur og diskur

Hráefni

 1 lambalæri, um <2.2 kg, helst nokkuð vel hangið
 6-8 hvítlauksgeirar
 2 tsk. þurrkað timjan
 1 tsk. þurrkað oregano
 2 tsk. paprikuduft
 rifinn börkur af einni sítrónu
 nýmalaður pipar
 salt

Leiðbeiningar

1

Kveikið á grillinu og hitið það vel.

2

Fitusnyrtið lærið e.t.v. dálítið, gerið djúpar raufar í það á nokkrum stöðum með hnífsoddi og stingið hvítlauksgeirum inn í það.

3

Blandið saman timjani, oregano, paprikudufti, sítrónuberki, pipar og salti og núið vel á allt lærið.

4

Slökkvið á öðrum brennaranum á gasgrilli (ef notað er kolagrill eru kolin færð út til hliðanna og álbakki hafður í miðjunni). Setjið lærið á grillið þar sem ekki er eldur undir og lokið síðan.

5

Grillið lærið í 1 klst og 10 til 30 mínútur eftir stærð og eftir því hve mikið það á að vera grillað (notið kjöthitamæli ef þið eruð ekki viss). Snúið lærinu tvisvar eða þrisvar en opnið grillið annars sem allra minnst.

6

Ef óskað er eftir dekkri skorpu má færa það yfir eldinn seinustu mínúturnar og fylgjast þá vel með því. Best er að það fái að standa í 25-30 mínútur eftir að það er tekið af grillinu.

Deila uppskrift