Grillað lambakjötssalat

Ljúffengt, heitt eða volgt lambakjötssalat, sett saman undir áhrifum úr ýmsum áttum. Best er að nota hryggvöðva (file) í salatið en einnig mætti nota t.d. innlærvöðva og grilla hann þá heldur lengur.

Pottur og diskur

Hráefni

 600 g lambahryggvöðvi
 1 msk 1001 nótt lambakrydd frá Pottagöldrum
 nýmalaður pipar
 salt
 1 meðalstór sæt kartafla
 2 msk ólífuolía
 250 g blönduð salatblöð
 1 rauðlaukur, skorinn í þunnar sneiðar
 0.5 gúrka, skorin í litla bita
 200 ml hreint skyr
 1 hvítlauksgeiri, saxaður smátt
 2-3 msk fersk mintulauf, söxuð

Leiðbeiningar

1

Kjötið kryddað með lambakryddblöndu, pipar og salti. Grillið hitað og ofninn hitaður í 200 gráður. Sæta kartaflan afhýdd og skorin í teninga, um 1 cm á kant. Þeim er svo raðað á álpappírsklædda bökunarplötu, kryddað með ögn af pipar og salti og olíunni ýrt yfir. Sett í ofninn og bakað í um 10 mínútur, eða þar til kartöflurnar eru orðnar meyrar og farnar að taka lit. Á meðan er kjötið grillað við góðan hita í 3-5 mínútur á hvorri hlið, eftir smekk. Látið standa í nokkrar mínútur. Salatblöðum, rauðlauk og gúrkubitum blandað saman á fati. Skyr, hvítlaukur og minta hrært saman og kryddað með pipar og salti. Hellt yfir salatið og blandað. Kjötið skorið í þunnar sneiðar og dreift yfir salatið ásamt kartöfluteningunum.

Deila uppskrift