Grillað lambainnralæri með sítrónutímíani

Eitt vinsælasta hráefnið á grillið er án efa íslenska lambakjötið. Það er bragðgott, mátulega feitt og svo er líka auðvelt að grilla það.  Það er alltaf hægt að slá í
gegn með lambakjöti sama hvert tilefnið er, það á alltaf við og verður alltaf hinn
klassíski, íslenski grillmatur.  Hér er uppskrift úr smiðju Úlfars Finnbjörnssonar, matreiðslumeistara sem birtist í Grillblaði Gestgjafans 2007.

Pottur og diskur

Hráefni

 2 lambainnlæri, skorin í 2 ½ cm þykkar sneiðar
 ½ dl olía
 1 dl sítrónutímíanlauf
 2-4 hvítlauksgeirar, pressaðir
 1 tsk. nýmalaður pipar
 2 msk. steinselja, smátt söxuð
 Maldon-salt

Leiðbeiningar

1

Setjið allt nema salt í skál og geymið í 2-12 klst. í kæli.

Sítrónutímíansósa:
2 dl sýrður rjómi
2 msk. majónes
2 msk. sítrónusafi
1 msk. hunang
1-2 msk. sítrónutímíanlauf
1-2 msk. steinselja, smátt söxuð
½ tsk. pipar
1 tsk. salt

Setjið allt í skál og blandið vel saman.

Strjúkið megnið af kryddleginum af kjötinu og grillið á vel heitu grilli í 2-3 mín. á hvorri hlið.

Berið kjötið fram með sósunni, blönduðu grænmeti og kartöflum.

2
Uppskriftin er úr Gestgjafanum. Umsjón: Úlfar Finnbjörnsson Myndir: Kristinn Magnússon Stílisti: Gerður Harðardóttir

Deila uppskrift