Grillað lambainnralæri með rósmaríni, sítrónu, hvítlauk og chili

Eitt vinsælasta hráefnið á grillið er án efa íslenska lambakjötið. Það er bragðgott, mátulega feitt og svo er líka auðvelt að grilla það. Það er alltaf hægt að slá í gegn með lambakjöti sama hvert tilefnið er, það á allt-af við og verður alltaf hinn klassíski, íslenski grillmatur. Hér koma nokkrar gómsætar uppskriftir úr þessu frábæra hráefni úr maí tölublaði Gestgjafans 2011.

Pottur og diskur

Hráefni

 800 g lambainnralæri
 safi og fínt rifinn börkur af 1 sítrónu
 2-3 msk. rósmarínnálar
 2-3 hvítlauksgeirar
 ½ msk. chili-flögur
 1 dl olía
 1 tsk. nýmalaður pipar
 ½ dl hvítvín, má sleppa

Leiðbeiningar

1

Setjið allt í poka og blandið vel saman.

Setjið pokann í skál og geymið í kæli í 12 klst.

Strjúkið þá megnið af vökvanum af kjötinu og grillið á meðalheitu grilli í 12-15 mín.

Snúið kjötinu reglulega á meðan og saltið.

2

Rósmarín- og sítrónusósa:

3

1 ½ dl majónes
1 ½ dl sýrður rjómi
1 dl ab-mjólk
1 msk. hunang
1 msk. fínt rifinn sítrónubörkur
1-2 msk. sítrónusafi
3 msk. steinselja, smátt söxuð
2 tsk. rósmarínnálar, fínt saxaðar
salt og nýmalaður pipar

Setjið allt í skál og blandið vel saman.

4
Uppskriftin er úr Gestgjafanum. Umsjón: Úlfar Finnbjörnsson Myndir: Kristinn Magnússon Stílisti: Guðrún Vaka Helgadóttir

Deila uppskrift