Grillað lambainnralæri
- 30 mín
- 4
Hráefni
Leiðbeiningar
Setjið sítrónu, chili-flögur, óregano og salt í litla skál og blandið. Dreypið 1-2 msk. af olíu yfir lambið og sáldrið saltblöndunni yfir allt kjötið.
Hitið grill eða grillpönnu og hafið á háum hita. Grillið lambið í u.þ.b. 4 mín. á hvorri hlið. Lækkið örlítið undir grillinu, setjið á lok og grillið kjötið á óbeinum hita í um 10-12 mínútur, eða þar til kjötið er eldað eftir smekk. Hér er einfaldast að nota kjöthitamæli og taka kjötið af grillinu þegar kjarnhiti er kominn í 54°C
Takið lambið af hitanum og látið hvíla í 10 mín. áður en það er skorið.
Setjið ólífur, kapers, steinselju, basilíku, furuhnetur og restina af ólífuolíunni í skál og blandið. Skerið kjötið í sneiðar og berið fram með flatbrauði, ólífusalsa og hummus.
Penslið flatbrauð með olíu og grillið á báðum hliðum í nokkrar sekúndur, berið fram með hummus.