Grillað lamb á spjóti með ananas og mangó

Það er ekkert íslenskt sumar án íslensks lambakjöts á grillið. Hérna er ljúffeng uppskrift eftir Úlfar Finnbjörnsson sem birtist í grillblaði Gestgjafans 2008.

Pottur og diskur

Hráefni

 800 g lambakjöt, skorið í 3×3 cm bita
 4 msk. dijon-sinnep
 2 msk. ljóst edik
 3 msk. olía
 1/2 tsk. salt
 1/2 tsk. pipar
 1/2 tsk. rósmarínnálar, smátt saxaar
 1-2 msk. fáfnisgras (esdragon), smátt saxað
 2-3 hvítlauksgeirar, pressaðir
 1 1/2 mangó, skrælt og skorið í bita
 1/2 ananas, skrældur og skorinn í bita

Leiðbeiningar

1

Setjið allt í skál og blandið vel saman.

Geymið í kæli yfir nótt.

Þræðið kjötið á grillteina ásamt ananas- og mangóbitum.

Grillið á vel heitu grilli í 3 mín. á hvorri hlið.

Berið fram með t.d. salati, grilluðu grænmeti, kartöflum og sinnepssósu.

Sinnepssósa
2 dl sýrður rjómi
1 dl majónes
1-2 hvítlauksgeirar
1 1/2 msk. fáfnisgras (esdragon), smátt saxað
1/2 msk. hunang
1 msk. sítrónusafi
1-2 msk. sinnep
Setjið allt í skál og blandið vel saman.

2
Uppskriftin er úr Gestgjafanum. Umsjón: Úlfar Finnbjörnsson Myndir: Karl Petersson

Deila uppskrift