Arabískar lambakótelettur

Lamba- og kindakjöt er mikið borðað í flestum Arabalöndum, allt frá Marokkó austur til Saudi-Arabíu og Íraks, og er algengast að kjötið sé soðið í ýmiss konar pottréttum eða grillað. Það er gjarna töluvert mikið kryddað og krydd eins og kóríander, kummin, kanell og chili eru algeng.

Pottur og diskur

Hráefni

 12-16 lambakótilettur
 3 hvítlauksgeirar, saxaðir smátt
 3 msk ólífuolía
 1 msk paprikuduft
 1 msk kóríanderfræ, steytt
 1 msk kummin, steytt
 2 tsk kanell
 negull á hnífsoddi
 chilipipar á hnífsoddi
 salt

Leiðbeiningar

1

Nær öll fita skorin af kótilettunum og beinið hreinsað, þannig að hryggvöðvinn einn sé eftir.

Best er auðvitað að gera þetta áður en kótiletturnar eru sagaðar.

Settar í skál og síðan er hvítlauk og olíu dreift yfir og kótilettunum velt upp úr blöndunni. Öllu kryddinu blandað saman í lítilli skál, stráð yfir kótiletturnar og þeim velt fram og aftur.

Sett í kæli í 3-4 klst og hrært öðru hverju.

Útigrill eða grillið í ofninum hitað, kótiletturnar saltaðar og grillaðar í 3-4 mínútur á hvorri hlið.

Deila uppskrift