Sesam- og sinnepshjúpað lambainnlæri
Hér er góð uppskrift að gómsætu lambainnlæri með seasam - og sinnepshjúp. Uppskriftin frá Úlfari Finnbjörnssyni og birtist í veislublaði Gestgjafans 2007.
- 4
Hráefni
3lambainnanlæri,u.þ.b.900ghvert
salt
nýmalaður svarturpipar
2msk.olía
Hjúpurogsósa:
1/2dlhunang
1dldijon-sinnep
1dlthahini(sesammauk)
2hvítlauksgeirar,pressair
3msk.estragon
3msk.hvítvínsedik
3msk.sítrónusafi
salt
nýmalaður svartur pipar
11/2dlolía
Leiðbeiningar
1
Hitið ofninn í 180°C.
2
Setjið allt sem á að fara í hjúp og sósu, nema olíuna, í skál og blandið vel.
3
Takið helminginn frá og geymið til þess að hjúpa með kjötið.
4
Búið sósuna til með því að hella olíunni í mjórri bunu í skálina með afganginum af hjúpnum og hrærið stöðugt í með písk á meðan.
5
Kryddið kjötið með salti og pipar og brúnið í olíu á pönnu. Setjið kjötið þá í ofnskúffu, penslið með hjúpnum og bakið í ofninum í 12 mín.
6
Berið fram með sósunni, steiktum kartöflum og grænmeti.
7
Uppskriftin er úr Gestgjafanum. Umsjón: Úlfar Finnbjörnsson Myndir: Gunnar Þór Nilsen