Grillaðar lambasneiðar í karrý
RAUTT KARRÝ - KÓKOS - STRENGJABAUNIR
- 20 mín
- 4
Hráefni
Lambakjöt og karrý marinering
1200 gr lamba framhryggjarsneiðar með beini
200 ml kókosmjólk
100 g rautt karrí mauk
60 ml límónusafi, nýkreistur
u.þ.b. 1 tsk. sjávarsalt
u.þ.b. ½ tsk. svartur pipar, nýmalaður
Baunasalat og kókos-karrý dressing
250 g strengjabaunir
300 g snjóbaunir
1 msk. ólífuolía
1 tsk. sykur
1 rauðlaukur, skorinn í þunnar sneiðar
4 vorlaukar, skornir í þunnar sneiðar
½ hnefafylli kóríander, skorinn gróft
sítrónubátar, til að bera fram með
Leiðbeiningar
Lambasneiðar og kókos-karrý marinering
1
Setjið kókosmjólk, 50 g af karrímauki, 1 msk. af límónusafa, ½ tsk. af salti og ¼ tsk. af pipar í stóra skál og hrærið saman.
2
Setjið lambakjötið í skálina og veltið upp úr kryddleginum. Látið standa í 15 mín.
3
Hitið grill eða grillpönnu og hafið á miðlungsháum hita. Grillið kjötið í um 3-4 mín. á hvorri hlið eða lengur eftir smekk. Berið fram með baunasalati og sítrónubátum til að kreista yfir.
Baunasalat og karrý dressing
4
Sjóðið baunirnar í 2 mín. í söltu vatni, hellið vatninu frá og setjið strax í skál með klakavatni til að stöðva eldunina.
5
Setjið olíu, sykur, restina af karrímaukinu og límónusafanum í skál og hrærið saman.
6
Þerrið baunirnar og veltið þeim upp úr sósunni ásamt rauðlauk, vorlauk og kóríander, bragðbætið með salti og pipar og setjið til hliðar.